Ég hef lent í því. Held það tengist aðallega því að hafa ekkert að gera. Ekki lengur skóli til að vakna upp í né vinna, bara sitja heima með eingin takmörk til að vinna að. Ég lenti það illa í því einusinni að nú passa ég mig að hafa alltaf eitthvað fyrir stafni. T.d. akkúrat núna er ég að læra heima áfanga sem ég féll í, jafnvel þótt næsta próf í honum sé ekki fyrr en í desember.
Mæli með því, ef þetta er það sama og ég lenti í, að þú takir þér eitthvað til að hafa sem takmark í lífinu, þótt það sé ekki nema að levela WoW characterinn þinn upp.