Ég er á Akranesi að ná í einkunnirnar mínar þegar ég tek eftir nokkrum að vinna fyrir Vinnuskólann, og tek eftir því að ein stelpa er að nota orf, án nokkurra varna.
Ég vann sjálfur fyrir Vinnuskólann í þrjú ár, og það var sjúklega sárt að fá hluti í sig, enda fer orf verulega hratt og er hávært, en hún þarna bara, hlustandi á iPodinn sinn með andlitið óvarið.
Frekar heimskulegt að mínu mati, af hverju er ekki reddað vörnum fyrir þetta? Þetta er ekki verulega dýrt.
Síðan er líka annað sem ég er ekki alveg viss um hvort það sé satt: Geta orf ekki haft einhver áhrif á frjósemi kvenna vegna hristingsins?