www.osammala.is

Ég skráði mig á þetta, og setti inn kennitöluna mína og fékk það svar að ég væri ekki nógu gömul.
(Reyndar stóð ekki nógu gamall en það er annað mál)
Er ég ekki nógu gömul til að hafa skoðun á þessu?
Ef þetta á að vera opinber kosning þá myndi fólk hafa kosningar um þetta en mér sýnist þetta bara vera um það að fólkið sem skráir sig í þetta hefur þá skoðun að vilja ekki fara í ESB.

Mér finnst svo leiðinlegt þegar ekki er hlustað á þá sem eru yngri en átján ára, við höfum alveg eitthvað til okkar máls.
Ég sjálf stend föst á mínum skoðunum með eins góðum rökstuðningi og ég finn en er ekki bara að segja hluti til að segja þá.

Heimska, fullorðna fólk.