Vá, ég veit að ég er pínu að kasta steini úr glerhúsi í flísina í augu náunga míns því það er bjálki að flækjast fyrir augunum mínum en þú'st, here goes:

Ég var á Lækjartorgi áðan þegar allt í einu fóru nokkrir einstaklingar að rífast…2 stelpur höfðu stolið tösku af annarri stelpu (svona 18-22 ára stelpur) og gaur sem var þarna með stelpunni og einhver random gaur fóru að elta þær og þessi eltingaleikur var þarna á torginu í alveg margar mínútur…og það var fullt af fólki sem tróð sér útí glugga, stoppaði til að horfa á þetta (einsog ég heh) og þannig, voru alveg svona 30 áhorfendur ef ég taldi rétt, gæti verið smáýking en ég held samt ekki.

Fólk þarf að fara að skipta sér meira af svona í staðinn fyrir að horfa bara á “hmm, þetta á ekki að gerast…oh well”.

Right?