Þetta dæmi er alveg voðalegt. Fyrir hið fyrsta opnast þetta alltaf í sama glugga og maður er að nota, sem er náttúrulega algjörlega ómögulegt, og þar að auki þarf maður í meirihluta tilfella að dreifa þessari andskotans plágu enn frekar ef maður vill taka þátt, þ.e.a.s. senda á fleiri vini. Þetta er eins og sífelldur straumur af andskotans keðjubréfum, sem eins og allir vita eru óþolandi fyrirbæri. Ég veit að ég þarf ekki að svara þessum gyllinæðarboðum, en þau eru fyrir og fara í taugarnar á mér.

Þetta er annars þráður númer tvö af vikulegum nöldurþráðum mínum.
Atheists believe in the Goddess Athe, who is wise and powerful beyond measure. They are some of the most religious people in the world.