bað um skiptimiða í dag , kallinn svaraði ekki og skiptimiðaboxið snúði að mér… ég spurði hátt og skýrt tvisvar í viðbót um skiptimiða.. loks var ég búin að fá nóg og sagði.. er það ekki þessi silfurlitaði takki neðst? fékk ekkert svar, ekki einu sinni augnsamband.. ég ýtti á hann og miðinn kom út og þegar ég teygði mig í hann greip hann í höndina á mér og öskraði: hvað kemur þessi vél þér við?!? ég er bílstjórinn og stjórna þessu! ég svaraði þessi vél kemur mér öllu máli við því ég þarf á henni að halda þá sleppti hann mér og sagði mér að drulla mér út.. ég fór út og hef aldrei verið jafn reiður á ævinni