Jeminn eini, hvaða flipp-sora síða er þetta orðin? Ekkert nema eitthvað djöfulsins bull trekk í trekk í trekk í trekk. Stjórnendurnir eru greinilega búnir að linnast eitthvað því back in the day (eins og maður segir) þá hefði þetta rugl aldrei fengið að viðgangast. Langflestir hérna láta eins og einhverjir viðvaningar, það frumlegasta sem þeim dettur í hug er annaðhvort að slá lyklaborðið svo að einhver tilviljunarkennd stafaruna kemur eða herma eftir notandanum á undan. Og hvað varð um metnaðinn? Korkarnir sem koma hérna eru oftast ein setning að lengd (ef það).

Þetta er ekki 4chan, þetta var aldrei 4chan og þetta verður vonandi aldrei 4chan. Þetta er hugi fucking is. Ekkert meme. Engin sósa. Ekkert kjaftæði.

flamesuit on
Let me in, I’ll bury the pain