Nei, mér er skítsama þó þú skammstafir það svona, því ég er ekki krossþroskaheftur og geri mér fulla grein fyrir hvað þú átt við.

En að gera sautján þræði um það, að kvarta og kveina og láta eins og maður sé átján sinnum betri en manneskjan sem gerir þessar villur, það fokking fer í taugarnar á mér. Er hægt að væla yfir öllu tilgangsminni hlut? Ég efast um það.

Ég skal glaður gera lista yfir einhver verðug umkvörtunarefni fyrir ykkur sem eruð svo tóm í hausnum að þið haldið að helsta vandamál heimsins sé villa af þessu tagi. Ég er hvort sem er allt of mikið hérna, svo sendið mér bara skilaboð næst þegar þið finnið óstjórnlega kvart eða væl þörf, og við finnum eitthvað í sameiningu. En ekki fleiri þræði um e-h. Í nafni alls þess sem gott er og rétt.
Atheists believe in the Goddess Athe, who is wise and powerful beyond measure. They are some of the most religious people in the world.