Á Föstudagskvöld var partý í mosfellsbæ og hittust þar margir góðir kunningjar og gekk partýið vel fram eftir nóttu.

Kl ca 3 fór svo fólk að týnast út og vildi þá partýhaldarinn bara fara að slútta þessu og virtu allir það enda allir í gúddí fíling.
En ekki voru allir á því að fara og ótrúlegt en satt þá voru það allir mosfellingarnir. Atburðarásin er hröð en margt gerðist sem átti ekki rétt á sér. Stelpa var kýld allharkalega og fékk hún einnig flösku í hausinn og þó tók hún ekki þátt í slagsmálunum.

Nú er verið að afla upplýsinga um málið og þá helst hverjir voru þar að verki og vill ég biðja alla þá sem vita eitthvað um málið að leggja okkur lið og láta þær í té því það þarf að “taka” aðeins á þessu.

Með fyrirfram þökk
Kvakku
______________________________