Ég hata idol. Ég hata allt við það, það sem það stendur fyrir, þá sem skipuleggja það, þá sem taka þátt. Kannski ekki sem persónur, en sem hluta af þeirri velgjuvekjandi heild sem þessi “keppni” er. Reyndar hata ég allar söngvakeppnir. Ég get ekki horft á það, ég vil ekki heyra af því, ég vil ekki vita af því. Og þetta er bara það sem ég kem í orð af óbeislaðri viðurstyggð minni á fyrirbærinu.

…Ef þið voruð að pæla í ástæða þessa korks er hún sú að ég mátti ekki hella mér yfir þetta frat á samnefndum þræði á tiveran korknum. Þannig að öll ykkur sem langar að ausa ókvæðisorðum yfir þennan sora, þetta er þráðurinn ykkar.

Bætt við 26. mars 2009 - 00:50
*ástæðu og *tilveran
Atheists believe in the Goddess Athe, who is wise and powerful beyond measure. They are some of the most religious people in the world.