Djöfull hata ég þessi jocks sem eru að tröllríða landinu (kringlunni aðallega) um þessar mundir!
Nóg af þessum fávitum með mullet og í fjólubláum jökkum sem rétt tilla derhúfum (sem by the way VERÐA að hafa einhvern límmiða á undir derinu) á hausinn á sér og ganga í litríkum Reebok skóm.
Til að toppa allt þá er þetta lið alltaf með buxurnar girtar mjög kæruleysislega og yfirleitt bara öðrum megin eða eitthvað oní sokkana!
Ekki nóg með það heldur talar þetta lið ekki um að fá sér mat heldur detta þau í mat og detta svefn, þau fara ekki neitt og fá sér ekkert að borða.
Þetta lið gerir ekki annað en að nota einhverja helvítis frasa sem að toppa frasana í næturvaktinni og dagvaktinni alveg, þannig að “já sææææll” er ekki nóg fyrir þetta lið!

Ég virkilega þoli ekki þetta útlit á þessu liði auk þess sem það er of kúl fyrir flest. Það er því miður alltof mikið af þessu í skólanum mínum og aðeins of áberandi líka.

Held þetta sé allt í sambandi við þetta lið sem fer í taugarnar á mér.
It's dolemite baby!!!