HÆ FÓLK

Hættum að bera saman ósambærilegar tónlistarstefnur og áttum okkur á því að þú getur ekki dæmt einhverja tegund af tónlist byggt á einhverri persónubundinni reynslu þinni við einhvern fávita sem kaus að skilgreina sig eftir þessari tónlistarstefnu (Hei, fokk, einhver gaur með leðurarmbönd með sítt hár lamdi mig á ólafsvík um helgina, best að fleima alla opeth þræði næstu fjögur árin).

Ég hlusta á tónlist, allan fjandann af tónlist, klæði mig í föt sem mér finnst flott óháð því hvaða skilaboð þau gefa og umgengst fólk sem mér finnst skemmtilegt óháð því hvaða helvítis tónlist það hlustar á og hvaða föt það klæðir sig í.