ég veit að tæknilega séð þá ætti þetta að fara á kattaáhugamálið…. en…

kisan mín er stórfurðuleg! ég var að reyna að sofa í morgun og hún lét mig ekki í friði, þó ég væri búin að gefa henni að éta og allt. Svo þykist hún vera rosa góð og malar en vill samt ekki að maður komi við sig, venjulega er hún mjög kelin. Síðan lagðist hún í fangið á mér og var voða sæt og góð en vildi samt ekki að ég snerti sig.
Svo núna hleypur hún út um allt hús og það koma svona hljóð upp úr henni eins og hún sé breima nema það að hún var búin að fara í ófrjósemisaðgerð.

Vitlausa litla kisa! :)
muhahahahaaaa