Já ég þekki stelpu sem er ári eldri en ég en við erum samt mjög góðir vinir og mér finnst persónulega mjög sæd og skemmtileg stelpa.
En gallinn er að hún bæði reykir og drekkur, og ég er að reyna að fá hana til að hætta þessu og hún er reyndar ekki búin að reykja í tvær vikur og hún segist vera að reyna að hætta að reykja..

En stærsti gallinn er að hún á kærasta sem er ári eldri en hún og hann er alveg eins og hún, ef ekki verri!!! Hann bæði reykir og drekkur og er ekkert að fara að hætta. Það kæmi mér líklega ekkert á óvart að hann væri í dópinu!

Finnst ykkur þetta eðlilegt krakkar á grunnskólaladri séu í svona miklu rugli??
og eitthverjar uppástungur um vhernig ég get fengið hana að hætta að drekka?
Stjórnandi á /hjol