HVER… er kominn aftur? Arg, hata svona auglýsingar þar sem maður fær ekki að vita hvað er verið að auglýsa ::::::::::::::::::::::::::::::@@@@@@@@@@@@@@@@@@@@@@@@@
Ölgerðin er einhver stærsti innflytjandi matvöru á Íslandi, svo það eitt og sér segir ekkert endilega að um sé að ræða drykk .. en ef niðurtalningin vísar á 1.mars, þá er bjór æði líklegur samt sem áður :P
Þetta er pottþétt eitthvað áfengi þar sem ég kíkti inná þessa síðu um daginn og þá var borði neðst á henni með nöfnum á einhverjum 10 skemmtistöðum, þessi borði er reyndar ekki þarna lengur =/ Vona svo innilega að þetta séu blá Ópalskot :)
já nákvæmlega! þetta er geðveikt spennandi svona fólk að öskra og svo alveg HANN ER KOMINN AFTUR! *blaðið rifnar*……..auglýsingin búin….. ég fékk áfall :(
“And Shepherds we shall be, for thee, my Lord, for thee.
í auglýsingunni segir eftir 1 dag og 10 tíma núna. Það er á miðnætti, kominn fyrsti mars á þá eru 20 ár liðin síðan bjórinn var leyfður aftur á íslandi.
Þetta er bjór auglýsing eða eitthvað í tengslum við bjór.
það er nú þegar til blátt ópal skot, svo það er hægt að útiloka það er að vinna á bar og þetta á að gerast þar á miðnætti á morgun, pottþétt einhver bjór, trúi ekki öðru!
Ég held samt að fólk sé að tala um með ‘Blátt Opal’ bragði. Ekki þetta glær hvíta dót með piparmintueitthvað bragði sem var með ljósbláum Opal miða sem ég finn ekki á www.vinbud.is lengur… En annars hætti blá opalið ekki þar sem bragð efnið varð ófáanlegt ?
Pabbi minn kom með tilgátu um að Löwenbräu væri aftur að koma í búðir, en það var eini bjórinn sem var til í nokkur ár á Íslandi eftir að bjór var leyfður 1989. En síðan kom Thule… Ölgerðin Egill Skallagrímsson hlýtur að hafa bruggað Löwenbräu. Í merki Löwenbräu er líka Ljón og það eru klær á í þessari auglýsingu…
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..