Ég finn ekki msn hjá mér!! það er þarna og ég er meira að segja inná því en alltaf þegar ég hægrismelli á litla takkann í hornið og geri Open Messenger þá kemur það ekki. Eða jú, kemur en ég sé það ekki og get því augljóslega ekki stækkað það!
Venjulega myndi ég spyrja fólk á msn um að hjálpa mér með svona en ég get það ekki núna einfaldlega því ég SÉ ÞAÐ EKKI :')

Svo ég var að vonast eftir því að einhver góðhjartaður hugari gæti hjálpað mér?? :c