sá þennan link hérna http://www.hugi.is/tilveran/threads.php?page=view&contentId=6525899 og ákvað að “nölrda” hérna í fyrsta sinn, þetta er nú þannig að það eru hálfgerð gangwars eða eitthvað rugl í gangi núna, ég get hvergi farið eða aðrir vinir mínir án þess að ég sé t.d. hurðaður, ráðist á einhvern af okkur eða öskrað á okkur úr bíl “helvítir homma ógeð” eða eitthvað slíkt sem er bæði aumingjalegt þar sem að þetta er gert á ferð og líka kaldhæðnislegt þar sem að þetta eru gaurar sem að fara í ljós 10sinnum í viku liggur við og nota svo mikið að ilmvatni, geli og slíkum efnum að það væri nóg að beina kveikjara uppað þeim og þá myndu þeir springa..

well, what ever, væri kannski gaman að vita hvað ykkur finnst um þetta

Bætt við 22. febrúar 2009 - 02:11
btw þegar ég segi að þeir kalli mann homma, þá er ég ekki að segja að ég sé hnakki !, svo langt frá því, til að sjá það gerast þurfiðið að bíða lengur enn eftir því að heimurinn endi