Veldur það varanlegum heilaskaða?
-Rannsókn sýnir að api sem reykir 30 jónur á dag slappast og deyr eftir 90 daga. Heilaskaðinn var mældur með fjölda ónýtra heilasella í öpum sem voru látnir reykja marijuana og þeir sem voru látnir í friði. Þessi rannsókn þótti sanna að marijuana dræpi heilasellur.
Það sem rannsóknarmennirnir sögðu þér ekki, fyrr en eftir 6 ára bið var: Þeir dóu ekki vegna marijuana heldur útaf því að það var sett gasgríma á apana og þeir fengu ekkert nema reyk, þar af leiðandi ekki nóg af súrefni sem gerði það að verkum að heilasellur drápust vegna ónógs súrefnis. Þeir kæfðu apana. Margar aðrar rannsóknir sýna hinsvegar að marijuana valdi engum heilaskemmdum.

Veldur það krabbameini í lungum?
-Það hefur ekki sömu áhrif og tóbaksreykingar. Nei, þetta er ekki slæmt fyrir lungun útaf því að það eru svo skaðleg efni í þessu eins og í tóbaki heldur útaf því að þú ert að anda að þér heitum reyk.

Er það ávanabindandi?
-Það eru mjög margir unglingar í meðferð útaf marijuana notkun í USA. Þetta hlýtur þá að vera mjög ávanabindandi. Nei. Ef unglingur í Bandaríkjunum er tekinn fyrir að reykja gras fær hann að velja hvort hann fari í fangelsi eða í meðferð… auðvitað velur hann meðferð. Kannanir sýna að 3% af fólkinu inni á þessum meðferðarstofnunum séu þarna af frjálsum vilja. Hinir hafa verið neyddir þangað af dómara eða forráðamanni. Rannsóknir sýna að kaffi er meira ávanabindandi en Marijuana.

Leiðir það út í harðari efni?
-Flestir hass-, heróín-, kókaín- og amfetamínfíklar byrjuðu í grasi, þá hlýtur gras að vera ástæðan. Þetta er eins og að segja að allir alkóhólistar á meðferðarstofnunum í dag hafi byrjað á mjólk, útaf því þeir hafa smakkað mjólk. Fólk sem er að leita sér að einhverju hörðu efni byrjar í grasi. Það er ekki neitt efni í reyknum sem leiðir út í harðari efni. Manneskjan sjálf velur harðari efni.

Skoðið þessi video:

Cannabis. The truth behind prohibition. The Union (part 1)
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=tQADo9rabS0
Cannabis. The truth behind prohibition. The Union (part 2)
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=7U_VL5uAaaQ
Cannabis. The truth behind prohibition. The Union (part 3)
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=b2BwPmKvHDU

Allur playlistinn hér:
http://www.youtube.com/view_play_list?p=43D2DE3B7F503BDB