ok. ég var að koma úr skólanum þegar eitthverjir strákar í 7 unda bekk ákveða að negla í mig snjóboltum og ekki nóg með það nei.. heldur koma þeir að mér og kaffæra mér alveg þangað til að ég byrja að finna fyrir máttleysistilfinningu.. svo sé ég skólastjórann í skólanum keyra fram hjá og ég held að hann hafi séð þetta en ákveður að gera ekki neitt. strákarnir voru þarna enn í kringum mig og voru að dæla fúkyrðum að mér… ooohhh er svoo fokk pirr.


en nei svo heldur helvítið áfram ég er að labba yfir götuna í átt að blokkinni minni og labba næstum fyrir bíl af því að ég var svo reiður og ekkert að fylgjastt með. þá kemur kall út úr bílnum alveg brjálaður og mér sýnist hann ætla að strunsa í mig svo ég ákveð að hlaupa frá.

svo tek ég upp snjóbolta og kasta í bílinn hans og hleyp í burtu og þá byrjaði hann að elta mig og ég svo geggjað hræddur hleyp inn í eitthvern garð og dett í eitthverja tjörn eða hvað þetta heitir. og svo sé ég að gaurinn er að koma sem var á bílnum þegar ég er að fara upp úr og svo sér hann að ég byrja aðdrífa mig og hann sttartar að hlaupa að mér og nær í úlpu ermina mína en ég með ákveðni næ að sleppa og hljóp alla leið heim á milljón.. og sjiiiitt hvað ég var hræddur þarna