Ókei það sem skeði núna í nótt, semsagt aðra nóttina í þessum ‘meiri’ mótmælum var alveg ömurlegt - ég held það séu flestir sammála því.

En þið ykkar sem eruð að segja ‘fávita mótmælendur’ og eitthvað í þá áttina, ættuð aðeins að anda. Það eru ekki allir mótmælendur sem eru alslæmir.
Sum ykkar láta kannski sjá sig niður í bæ, önnur bíða bara heima og láta aðra sjá um þessi mál fyrir sig. Og það er líka töff hjá heilalausum hálfvitum að gera grín að þeim sem mótmæla - þeir halda að það sé slæmt orð. Það er kannski slæmt orð yfir eitthvern sem vill vera þekkur fyrir að kyngja öllu kjaftæðinu sem er reynt að troða ofan í hann.

Ég veit að lögreglan er að vinna vinnuna sína og mér þykir leiðinlegt allt sem hún er búin að vera að lenda í. Ég er sennilega sammála flestum ykkar á flestum sviðum, langar bara að benda á eitt. Það eru allir að segja að ofbeldisfull mótmæli leysi engan vanda og lagi ekki neitt …

Það eru búin að vera ‘friðsamleg mótmæli’ í 17+(nokkuð viss) laugardaga í röð + aðra auka daga. Það er ekkert búið að ske enn.
Það eru búin núna að vera ‘mótmæli með ofbeldi’ í 2 sólarhringa - og það er strax allt að breytast.

Sama hversu sorglegt það er að komast að þessari niðurstöðu … Segir hún okkur samt ekki eitthvað ?

Skítköst og misgáfulegat athugasemdir velkomnar.

ATH: Ég styð ekki ofbeldi í nokkurri mynd, en þetta segir sig samt sjálft.
Undirskrift sem þú vilt hafa í lok hvers pósts á korkunum. Aðeins 1024 stafir leyfðir, allt framyfir þeirri takmörkun verður klippt af.