Ég veit eiginlega ekki af hverju ég er að skrifa þetta hérna. Býst hvorki við góðum ráðum né vorkun … Langaði bara að segja einhverjum …

Ég er einmana. Ég er nýflutt og eiginlega ekki ennþá komin inní neitt hérna. Ég á fullt af vinum, en þau eru flest hinu megin á landinu, önnur í útlöndum. Ég sé vini mína nærri því aldrei, þau eiga fæst pening til að vera að koma í heimsókn. Ég þekki svosem fólk hérna líka, en þeir sem ég þekki eiga allir aðra vini sem þau hanga með líka svo ég hef takmarkaðan félagsskap.

Ég hef ekki búið hjá foreldrum mínum í einhvern tíma en ég hef alltaf búið með ættingjum síðan. Ég er eiginlega í fyrsta skiptið ein, sem er erfiðara en ég hélt.

Allavega, ég hef ekki séð fólk núna síðustu meira en bara úti á götu, af því allir eru eitthvað svo uppteknir einmitt núna. Svo ég sit ein í sjálfsvorkun …