Ég er smá spurningu svona hvað þið teljið feitt.
Vona að þetta fari ekki út í einhver rosa rifrildi ef einhver er ósammála hinum og þessum með sínar skoðanir xD

En ég tel mig feita (burtséð frá óléttuni! bara taka það fram! :P)
En ég segi kannski að ég ætli að sleppa að fá mér eitthvað visst að borða til að reyna hafa smá stjórn á þessu sem ég set ofan í mig, mætti ekki við það að bæta á mig. (enginn megrun eða neitt þannig)

Og þó heyrist í sumum “ hvað er eiginlega að þér!? þú ert ekkert feit!”
Og einhver annar segir kannski “ já ég skil hvað þú meinar”.. og bendir mér svo á eitthvað sem er mjög svipað en aðeins hollara..

Og svo er ég úti og sé manneskju sem ég tel vera Þybbin, þá er talað um hvað sá aðili sé feitur O_o

Og kærastinn minn til dæmis, hann er með smá bumbu en allstaðar annarstaðar grannur (eða frekar vöðvakenndur) eina sem er á honum er smá bumba. Ég myndi segja að hann sé þybbin.

En svo talaði stóri bróðir minn um að hann væri FEITUR. O_o
Og þá er ég svona “ bíddu er ég með eitthvað afbryðilegt hvað ég kalla að vera þybbin og feitur? ef kærastinn minn er FEITUR samkvæmt bróður mínum þá hlít ég að vera offitu sjúklingur?

Æj þetta er smá brenglað! xD
Ég er bara búin að vera að pæla í þessu!
Svo sé eg stundum manneskju sem mér finnst grönn að sjá.. Og þá heyrist í einhverjum öðrum ” þessi mætti nú fara aðeins að passa sig!"

Einhver sem að skilur mig, eða er ég algerlega óskiljanleg?

Hvað teljið þið vera, Grannur, þybbinn, Feitur, Offita?
Því eg er farin að halda að ég sé með algerlega brenglaða sjón á þessu!

Og ég vil helst líka fá að heyra skoðanir hjá þeim sem eru komnir í menntaskóla og yfir :P

(Ekki alveg að marka grunnskóla krakka, eða allavega ekki í mínu hverfi.. því vinir litla bróður mins voru að kalla einhverja stelpu feita sem er alls ekki feit!)
En ætla samt ekki að alhæfa þetta yfir alla grunnskóla krakka samt.. (kannski bara kunningja litla bróður míns?)

HAHA xD

Bætt við 7. janúar 2009 - 12:19
Ég nenni ekki að þurfa svara öllum alltaf sama svarinu aftur þá ætla ég að skrifa þetta bara hérna líka..

Allt þetta þíðir að vera yfir meðalþyngd.

en ég hef samt alltaf haft viðmun. eða eitthvað þannig..

Þybbin = rétt eða aðeins yfir meðalþyngd
Feitur = Ættir að fara gera eitthvað í þessu.. og það strax helst! áður en þetta verður eitthvað rosalegt vandamál
Offita = ókei.. Seek a doctor!

(samt ekki alveg svona endilega, en fann ekkert að segja við þessu.. er ekki beint sú duglegasta að finna eitthvað sem passar við hvað eg meina.. En eitthvað svona..!) xD