Ég er svo pirruð eitthvað og ætla að nöldra aðeins!
Litli bróðir minn er 5 ára gamall, og hefur verið stanslaust frá jólunum að tala um gamlárskvöld og raketurnar og hlakkað mikið til að sjá þetta. Og planið frá upphafi var að hann fengi auðvitað að vaka og sjá þetta. Og koma út.

Hann vaknaði reyndar eldsnemma gamlársdag, en það var bara hugsað að hann myndi leggja sig áður og vera svo bara vakinn.
(ég og pabbi fórum og lögðum okkur rétt eftir mat og fengum fólk til að vekja okkur svo eftir smátíma)

Þegar ég var vakinn þá var það litli bróðir minn sem er 14 sem vakti mig, klukkan hálf tólf! og pabba.
5 ára guttinn var SOFANDI, ekkert verið að fara að vekja hann.

Og ég fór fram og talaði við mömmu hvort það ætti ekki að vekja strákinn, mamma var svona alveg sama þannigséð, (bara dauðþreytt eftir daginn og svona).

Og 14 ára strákurinn vakti litla.
Og þá allt í einu trompaðist AMMA MÍN, hún var alveg að flippa út! Og labbaði fram og til baka og var ógeðslega fruntuleg að ég og bróðir minn höfðum eyðilagt fyrir henni að stjórna heimilinu og svíkja lítinn strák!
Og henni var skítsama um að þetta væri bara 1 sinni á ári.

Var mest að tuða yfir því að hver ætti að vaka með honum núna, og passa hann og þegar ég sagðist sjá um þetta allt saman, þá fór amma að röfla um að hann myndi sofa allan daginn á morgun.

Svo þegar ég klæddi litla í fötin sín þá var amma að reyna stoppa það. Og sagði að hann þyrfti ekkert að fara í föt til að sjá þetta, eg sagði að hann væri að fara út með okkur. ÞÁ FALDI HÚN GALLANN HANS! og laug því að hún hafi ekki tekið hann, þegar eg sagði að eg myndi þá bara hafa hann í úlpunni, þá fannst gallinn allt í einu, og það var hún sem “fann” hann.

(hún hefur alltaf verið alveg gríðarlega afskiptasöm með allt sem gengur og gerist og allir eru verulega þreyttir á því, og oft verið að minna hana á að hún EIGI EKKI 5 ára guttan!, og hún notar hrottalega mikið andlegt ofbeldi á alla á heimilinu.. en það virkar bara á mömmu og litla strákinn.)

Og hún sagði eitthvað í þessum dúr við mömmu en samt skot á mig í leiðinni, eða átti að vera það.

“ já svo kannski einn daginn færðu að ráða barninu þínu sjálf, sumir bara virða ekki fastar reglur á börnum annara og eru því að reyna skemma fyrir!”

(þarna sprakk ég reyndar bara úr hlátri því þetta var bara hræsni í ömmu)

og svo sagði hún tvennt við mig sem sló mig alveg út og fékk mig bara algerlega að hunsa hana, hætti að svara henni því þarna ákvað eg að ég myndi bara koma fram við hana eins og smákrakka ef hún gæti virkilega ekki séð munin á 5 barni og.. já

1 sem hún sagði var, “ Afhverju vaktiru ekki mömmu þína í hitt í fyrra til að sjá flugeldana en vekur svo bróður þinn!” (sagði þetta ógeðslega frekjulega og eins og hún væri hneyksluð)

Fyrstalagi, þá var mamma búin að vera fárveik þá og það var hóað í hana lauslega einu sinni. Og öðrulagi þá er soldill munur á 5 ára barni sem er búinn að biða spenntur eftir þessu kvöldi og 40 ára manneskju sem er ekkert sérlega spennt.

2 sem hún sagði svo við mig ( ég er ólétt, 22 vikur) og hún sagði “ já þá á næsta ári þá vek ég bara barnið þitt!!

Meina vá, how low can you go ? þarna stóðst eg reyndar ekki málið og fór smá að flissa en var að reyna halda í mér.

EN ég er samt frekar pirruð út í ömmu, að virkilega að láta alla sofa! ég lét lofa að vekja mig! Og amma ARGH stundum langar mig að fleygja henni á ruslahaugana eða henda henni á eitthvað hæli! svo reyndi hún sama kvöldið að koma afstað leiðindum!
Og afþví að eg hunsaði ömmu og ”Hlíddi" engu sem hún sagði, að þá fór hún að hringja í fólk og segja því hvernig ég væri.
Ohh pirraða ég!
lemja hana í hausinn með sleggju..!