Mig langar að væla yfir prófunum mínum.

Ég er í þremur prófum og samt er ég ekki búin fyrr en 19. des. Var hætt í venjulegum tímum fyrstu vikuna í desember en samt er ég ennþá bara búin að taka eitt próf!

Núna er ég að reyna að læra á fullu, rétt að byrja þegar flestir vinir mínir eru nýbúnir í prófum … Sem er ömurlegt.

Hvernig eru prófin hjá ykkur?

Skiljið nú eftir einhver skemmtileg svör handa mér, svo ég geti gert eitthvað gáfulegt þegar ég stelst til að líta upp úr bókunum :)