Ein vinkona mín (ekki náin vinkona, en svona já.)
Við vorum einhverntímann fyrir soldið löngu síðan að tala saman um kynlíf og eitthvað.
Og hún er ári eldri en ég. Og það sló mig svo hrottarlega hvað hún er með ranga sýn á hvernig maður gæti orðið ófrískur.
Og ég var að reyna að segja henni að það er ekki bara nóg að skola eða eitthvað. Og ég útskýrði fyrir henni að minni bestu vittneskju um kynlíf og hvernig þetta virkar fyrir sig. Og ég hélt að hún hafði náð því.

(hérna kemur samt fáranlegi parturinn.. Svo verð ÉG ólétt!, ég veit haha fyndið.. Safety first ræðumaðurinn makes a mistake!) hehe.

Svo sagði ég henni frá því að ég væri ólétt og það sem hún sagði svo eftir smástund.

“ bíddu! skolaðiru ekki á þér leggöngin eftir á, eða fórst á klósettið og pissaðir og reyndir að kreista út brundið”

(ég gerði það reyndar, en ekki til þess að koma í veg fyrir óléttu, nennti ekki strax í sturtu og gerði svona flýti þrifnað)

Þá spurði hún mig í hvaða stellingum við vorum í, og talaði að það væri best að hafa samfarir standandi til að koma í veg fyrir svona atvik.

Og talaði svo um að maður þyrti í raun og veru ekki að vera með gettnaðarvarnir ef maður gerir hlutina rétt.

Ég fékk bókstaflega sjokk og fór að hlægja ósjálfrátt af henni..

Það kom mér virkilega á óvart hvað hún var ofsalega fáfróð.
Er fólk virkilega svona fáfrótt sumir, með þessa hluti á 18 ára aldrinum..?
Ég get ekki líst því sem eg er að meina með þessari spurningu, en þetta kom mér á óvart.