Já hæ. Endi nóvembermánaðar og byrjun desember hafa verið paaain ! Ég byrjaði á því að fara í svona árstjekk hjá tannlækninum mínum í endann nóvember. Þá var stungið svona eitthverju dóti til að taka myndir sem tekur nokkrar sek en það er samt svo ógeðslega vont. Þá var ég með 3 skemmdir og ein var löguð þarna og ég deyfð og borað og límt og það. Svo þurfti ég að koma aftur til að laga hinar 2, þá var ég líka deyfð og allt saman. Svo þurfti ég að koma aftur til að láta taka úr mér 4 tennur - ekki endajaxla, heldur jaxlana við hliðina á framtönnunum uppi og niðri - til þess að ég geti fengið TEINA ! (já ég veit ykkur finnst það örugglega öllum ljótt) og þá var ég aftur deyfð sem ég hata. Svo í gær þá þurfti ég að fara aftur á þessaða blessuðu tannlæknastofu, konan í móttökunni er farin að þekkja mig og tannlæknirinn spurði mig hvernig mér gekk í prófinu sem ég var í, þetta er bara orðið eins og eitthvað routine. En já, þar fékk ég þessar yndislegu teygjur á milli jaxlanna sem eru eftir og það er óóógeðslega vont! Ég get ekki borðað neitt nema jógúrt og hef ekki getað borðað neitt síðan ég man ekki hvenær. Og svo á mánudaginn fæ ég teina <333 Svona rétt fyrir jól líka ! Já ég er pirruð og þurfti aðeins að nöldra.
Hvað var vont lengi eftir að þið fenguð teina þið sem hafið fengið þá ?