[nöldur]Ég þoli ekki þegar maður er í strætó og svo kemur her af litlum krökkum inn (eða er þar fyrir sem er verra því þá fær maður ekki sæti) og eru með ógeðslega mikil læti og geta ekki verið kyrr.
Lenti í því áðan að það komu TVEIR mismunandi hópar inn og voru að sjálfsögðu alla leið í Garðabæinn þar sem ég fer út. Og ég sem langaði bara að fá að sofa í friði fékk engan svefnfrið útaf e-m smábörnum sem þurfa að öskra á næsta mann við hliðina.