Foreldrar mínir skipta sér of mikið af skólamálum mínum og hlutunum sem ég eyði peningunum mínum í. Og hvað ég skulda mikið.

Þau verða reið við mig ef ég stend mig illa í e-m áfanga. Ég borga skólagjöldin og bækurnar og matinn ef ég kaupi mér eitthvað í skólanum. Þau styðja mig ekki neitt ef mig vantar stuðning varðandi e-ð tengt skólanum, en ég nenni ekki að fara nánar út í það. Þau fóru ekki í framhaldsskóla sjálf heldur. Finnst þau hafa 0 rétt á því að drulla yfir mig ef ég fæ ekki 8 í e-m áfanga. :D Nú, þar sem ég fæ engan stuðning frá þeim, at all.

Ég er að borga bílprófið mitt sjálf, sem er alls ekkert ódýrt. Mamma er aaaaaaaalltaf að spurja mig hvort ég skuldi ökukennaranum mínum ekki örugglega morð og milljón og er aaaaaaalltaf að spurja hvort það séu ekki einhverjir MÁNUÐIR síðan ég borgaði honum síðast og hvað það er dónalegt af mér að borga þetta í pörtum. Það er kreppa, ég er í námi og ég er í 30% vinnu - það ER erfitt að borga þetta. :D Svo gerðum við samning varðandi greiðsluna. Ég er alltaf að segja henni þetta en samt heldur hún áfram að röfla eins og gömul kelling.

Ég hef tekið strætó í skólann síðan í níunda bekk, og bara hvert sem ég fer. Það kemur nú fyrir að maður missir af strætó en þá læt ég það bara yfirleitt hafa sig og tek næsta. Um daginn var ég að fara í vinnna á helvítis sunnudegi, og báðir strætóarnir sem ég tek í vinnuna ganga á klst fresti á sunnudögum. Ég var komin frá Mosfellsbæ í Ártúnið og þá var 24 farin. Ég hringdi í mömmu og bað hana um að koma (hún var í Grafarvogi) og hún bara went crazy. :D Allan helvítis tímann á leiðinni frá Ártúni uppí Smáralind, gargaði hún á mig og drullaði yfir mig og sagði að ég væri sko ALLTAF að missa af strætó og ALLTAF að biðja hana um að sækja mig hvert sem væri. Sem er sko ekki satt, mamma er einmitt sú síðasta sem ég hringi í ef mig vantar far eitthvert. Og þúst, þarna vantaði mig virkilega far því ég ætlaði ekki að koma 80 mín. of seint í vinnuna.

Stundum kaupi ég mér svolítið mikið af fötum eftir útborgun (mjööög sjaldan samt) og það pirrar mömmu rosalega mikið, því það bitnar nefnilega rosalega mikið á henni þegar ég eyði mínum eigin pening í sjálfa mig. 8-) Það fer mjög í taugarnar á mér, ég á þennan pening, ég vann fyrir honum og ég bið mömmu aldrei um pening svo þetta bitnar núll á henni. Henni kemur þetta ekkert við.

==D=D=D=DD=