Langaði bara aðeins að tjá mig um það hvað mamma mín á það til að vera frábær! <3
Ég fer sko alltaf með nesti í skólann (jeee), en það er ekki til neitt núna til að hafa í nesti (omg), svo mamma tók upp á því að baka kanilsnúða í nesti, klukkan hálf 11 um kvöld núna áðan svo ég þyrfti ekki að eyða pening í mat á morgun! :D:D <3
Ekki er mamma ykkar svona hugulsöm? Neeei ég hélt ekki ^^

Og já, síðasti skóladagur hjá mér fyrir próf á morgun, svo það er alveg tilvalið að hafa kanilsnúða, því bekkurinn minn er að fara að hafa það kózý með umsjónakennaranum í tíma á morgun

…vá hvað þetta hljómar eins og ég sé í fimmta bekk í grunnskóla ennþá :'D Bara svona að koma því á framfæri, þá er ég á þriðja ári í menntó! haha
The meeting of two personalities is like the contact of two chemical substances: if there is any reaction, both are transformed.