Sorry að þetta fer á /tilveran … hin áhugamálin eru bara svo ógeðslega dauð

En málið hjá mér er tölvuvandamál sem ég hef aldrei séð áður

Þetta byrjaði fyrir nokkrum dögum, að skjárinn bara slökkti á sér og kveikti á sér án þess að láta mig vita, ég bara wtf… hélt bara áfram í tölvunni

Svo í gær, þá fór þetta að ágerast, koma oftar og svona, samt alveg þannig ég pirraðist ekkert, hélt að þetta myndi lagast við hvíld í nótt

En núna er ég að verða brjálaður… þetta gerist á 2 sec fresti og tölvan frýs líka alltaf í smá stund við það og skjárinn fer í fokk… þetta er að gerast stanslaust núna…

Hjálp einhver?