Hefur einhver hérna hugmynd um hvernig floga einkenni lýsa sér? Hvort sem þau eru væg eða sterk..?

Mamma mín er með snert af flogaveiki (en það er erfitt fyrir mig að átta mig á þessu, þar sem hún er með liðagigt og eitthvern annan sjúkdóm/ veiki ? líka
________
ég er nefnilega með smá áhyggjur af sjálfri mér, og vill láta athuga það en kann ekki við það að fara bara “ úlfur úlfur ” eða þurfa að borga eitthvað svaka fyrir eitthvað sem var bara rugl í mér ?.
___________
Ég vil taka það fram að ég var á tímabili, uhm í 2 ár, að fikta í dópi.
Byrjaði vægt, hass og gras reykingar, fór svo mest út í hassið. Fór svo að taka in læknadóp (semsagt lyf) og áfengi (samt ekki oft, var smá hrædd við það man ég, en gerði það af og til). Prófaði mestalagi 3 sinnum að gasa bara með kveikjara gasi. (og ekki mikið í senn).
Og fékk mér að ganni mínu RUSH (sem fæst í Adam og evu til dæmis) Og var að ganni mínu að sniffa það. Gerði það kannski svona 7 sinnum.

(en hassreykingarnar voru orðnar daglegar nánast hjá mér, og grasið), svo fór ég að fikta í kókaíni :S.
______________________________
En vá þetta var samt ekki alveg það sem ég ætlaði að tala um en verður að fylgja með þó það eigi ekki að vera langt.

Svo fór ég í meðferð og var látin fara til Svíþjóðar og vera þar einhverstaðar í smábæ með bara mömmu minni og einhverju fólki. Orðin clean.

Fékk mér svo löngu seinna (núna semsagt fyrir svona hálfu ári, Hass (frá öðrum sala en venjulega) og það fór svo fucked up í mig, eftir að ég stútaði 2 beyglum og 2 smá smókum. (veit ekkert hvað þetta kallast, allavega þegar maður er að taka fyrsta smókinn, fyllir vel í allt og tekur svo allan reykinn.) og já 2 smá smókum.
Fór ég öll að kippast og bókstaflega sjá allt svona öfgakennt eins og í bíómyndunum þegar hlutir snúast bókstaflega í hringi. Heyrði raddir sem eg vissi að voru bara ýmindun í mér, og var liggur við að berjast við sjálfa mig að vera á staðnum en ekki að detta inn í minn eigin heim eða hálfgert blackout. Var farin að skelli hlæja og hágráta (án tára) á skiptis ánþess að ráða neitt við það, og var að reyna tala og segja við félagana að ég réði ekki við þetta, og að þetta hafi farið eitthvað skringilega í mig.
Svo var ég allt í einu farin að segja hluti ánþess að fatta að eg hafi sagt eitthvað. Og svo fékk ég allt í einu ofsa sting í hausinn eins og þetta hafi verið heimsins versti hausverkur. Svo þegar ég var að drífa mig heim til vinkonu minnar, Að þá byrjaði ég allt í einu að æla og æla og æla og æla,ég helt ég væri að fara deya þarna. Svo loksins var ég hætt að æla. Og var orðin svo slöpp og vönkuð, en með svaka kippi í líkamanum.
Svo daginn eftir sagði vinkona mín við mig að ég hafi verið eins og fiskur á þurru landi í endann með kippina. Og síðan allt í einu hættu þeir og ég sofandi.

Svo ákvað ég að hætta að reykja, ég varð hrædd eftir þetta kvöld. En svo heimskaðist ég til að taka in 2 lyrica (sem er lyf) Og það fór líka eitthvað vitlaust ofan í mig (hafði tekið það áður, ánþess að fá vímu heldur bara útaf kvíða)

Og þetta kvöld, endaði ég upp á sjúkrahúsi. Kærastinn minn bjargaði lífinu mínu. (hann vissi ekki þegar ég tók inn lyf, en sá að eg var skrítin, einsgott að hann ákvað að fyglja mér heim, í staðinn fyrir að skilja mig eftir af reiði) Hann sagði að ég hafi stirnað öll upp!
Orðið alveg stíf í líkamanum og fengið kippi um allan líkama og orðið smá bláleit í framan, Skall í grasið og hélt þannig áfram með kippina og síðan hafi örlítið blóð lekið úr munnvikinu.. (ég beit í tunguna greinilega,) því daginn eftir þegar ég vaknaði á sjúkrahúsinu var ég ofsalega aum í tungunni.
_____________________

Og já ídag (semsagt nútíðin) snerti ég ekkert svona, og er svekkt við sjálfa mig að hafa freistast þarna..
En ég er að slást við minnisleysi, sem er að gera mig brjálaða og oft lít ég út fyrir að vera lygari útaf því að eg “man ekki suma hluti”. :o
Og ég fer stundum inn í minn eigin heim, einhver er að tala við mig, og ég hef áhuga á umræðunni! en áður en ég veit af, er ég ekki lengur að hlusta og er bara komin með störu og er í mínum eigin heimi.
Ég fæ af og til svona smávæga kippi, tók ekki eftir því fyrr en sumir vinir mínir ídag, fóru að gera grín af því.
Og er alltaf að fá hroll, fæ hroll að metalai svona 7 sinnum á dag.

(ekki taka þessu sem eg sé einhver svakalegur egóisti, en samt, þegar ég var yngri var ég mjög fljótþroska miðavið marga krakka í mínum árgangi, og mjög fljót að læra!, en svona núna ídag er eins og ef einhver smá minnsta áreynsla fer á mig, að ég þurfi að hugsa eitthvað sem er flókið að þá er eins og hausinn á mér stöðvist! frosni bara..)
Og stundum (sjaldan! sem betur fer en gerist stundum! ekki oft!) að þá rugla ég draumum við raunveruleikan)
________________________

EN JÁ afsagið hvað þetta er ofsalega langt :| eg vona að einhver hafi nennt að rúlla yfir þetta.. ?

Veit einhver hvort þetta gæti verið eitthvað sem ég þarf að láta athuga með, og hvort einhver hafi smá hugmynd hvort þetta gæti þýtt að ég sé með snert eða eitthvað af flogaveiki ? eða einhverju öðru ? :S