Veit ekki hvort einhver hefur minnst á þennan sora en hún fer svo illilega í taugarnar á mér.
Ekki er það nóg að handritið er svo ömurlegt heldur þurfa leikararnir líka að vera hrikalegir.
Fyrir þá sem ekki vita, KFC eru að auglýsa nýjung þar sem þeir reyna að gera fæðuna fjölbreyttari með einhverri nýrri kaloríubombu sem á að koma í stað franskanna.
Jæja, þetta hefst með ungri stúlku sem fer og fær sér að borða fyrir framan ömmu sína, en hún fær sér bara kjöt. NEI þetta gengur ekki fyrir ömmuna svo hún lætur hana fá kartöflumús með.
Svo svissast þetta yfir til einhvers KFC staðar þar sem starfsmaður á staðinum býður upp á þessa nýjung og túlkar það með einum versta leik sem ég hef séð á ævi minni. Hann grætir mig. Svo fáum við að sjá viðbrögð litla stráksins sem bíður spenntur eftir KFC góðgæti og ofbýður greinilega við þessu boði og lítur út fyrir að vera að fara að æla. The End.

/rage.