Hæ. Ég er hrikalegur aðdáandi þáttana Atvinnumaðurinn sem voru á dagskrá árið 2003 sem Þorsteinn Guðmundsson lék í og mig langar þvílíkt að fá þá aftur á dagskrá enda voru þeir bara sýndir einu sinni og hafa síðan þá ekki verið gefnir út á dvd né fengið neina dreifingu. Ég veit að það fíluðu ekki allir þættina en þeir sem fíluðu þá eru vinsamlegast beðnir að senda línu á skjáinn og pressa á þá að setja þá aftur á dagskrá. Þura ekkert að vera á besta útsendingartíma né neitt svoleiðis en það eru 168 klukkutímar í vikunni sem gefur þeim 336 staði til að koma þessu inn í dagskrána sína fyrir okkur gömlu aðdáendur.

Netfangið hjá birtingarstjóranum er halldora@skjarinn.is

B.t.w. fyrir þá sem ekki þekkja atvinnumanninn þá eru hér tvær klippur
http://www.youtube.com/watch?v=RpUzP81BmY4
http://www.youtube.com/watch?v=NkL5MgEtv4A&NR=1

Takk takk :)

Bætt við 14. nóvember 2008 - 14:38
Ætlaði að benda á að það er víst ekki birtingarstjórinn sem sér um þessi mál heldur dagskrárstjórinn og hún heitir Kristjana og emailið hjá henni er nanny@skjarinn.is