Mig dreymdi óeðlilega raunverulegan draum.

Mig dreymdi að ég væri að eignast barn, mig dreymdi alla fæðinguna og allt, og einhvernvegin komust hugarar inní þetta; kærastinn minn, faðir barnsins náttúrulega, var að labba einhvert í áttina sem ég var að fara í draumnum og svo kom einhver sem hét lobsterbunny og sagði að hann væri að baila á hann.
Og hann svaraði bara að konan hans væri að fara eignast barn og labbaði í burtu.
og svo fór lobsterbunny inn einhvert og hélt partý afþví ég var að eignast barn.
og svo þegar ég eignaðist barnið, var hausinn svartur, annar fóturinn svartur og hitt eðlilegt, og svo þegar ég leit aftur á barnið var það alveg eðlilegt.
Svo var ég búin að aflita hárið á barninu og klæða það og svo ætlaði ég í Smáralind að kaupa nammi í Hagkaup.
Og ég labbaði þangað með lok af varalit og ekkert barn og keypti mér nammi, þó ég væri með nammi í vasanum.

Svo vaknaði ég, og var með geðveikt áhyggjur af hvar barnið mitt væri, og hvar nammið mitt væri.

Það tók mig svona um kortér að fullvissa sjálfa mig um að ég ætti ekki barn.