Ég er með hugmynd að fullkomnum þætti fyrir Skjá Einn. Sko það er einn stjórnandi, 6 keppendur í 3 liðum og einn maður sem stendur í einu horninu sem glottir og spilar á banjó. Það verða 5 lotur, fyrsta lotan gengur út á það að stjórnandinn stendur fyrir framan keppenur og hefur aðra hendina fyrir aftan bak. Hann setur upp nokkra putta frá 1-5 og keppendurnir þurfa svo að giska hvað marga putta hann heldur uppi. Eftir fyrstu lotu kemur nýaldasteppdansari og dansar á meðan verður spiluð sænsk þjóðlög af banjóglottaranum. Í lotu nr. 2 kemur steppdansarinn fram og keppendur þurfa að giska á hvaða sænska þjóðlag hann ætlar að dansa yfir. Þá munum við fara í heimsókn til óþekkta einstaklinga og þeir munu sýna okkur smekklausu heimili sín. Þá er komið af þriðju lotu en þá kemur sá sem sýndi okkur heimilis sitt, en núna í dulargerfi svo að keppendurnir vita ekki hver þetta er, nema að þau hafi horft eitthverntíman áður á þáttinn. Svo kemur skemtiatriði, það verður flutt af hæfileikalausasta einstaklinginum í áhorfendahópnum. Í fjórðu lotu kemur stjórnandinn aftur og lætur hendurna aftur bak við sig en núna heldur hann bara einum putta uppi. Ójá en núna þurfa keppendurnir að giska hvaða putta hann er að halda uppi. Síðan kemur eitthver gestur, eitthver einstaklingur sem engin kannast við og öllum er sama um, hann verður í 20 mínutna viðtali við stjórnandann og þeir munu tala um daginn og veginn á meðan keppendurnir sýna látbragðsleiki. Svo kemur fimmta og seinasta lotan. Í henni hugsar stjórnandinn sér nafn og keppendurnir þurfa að giska á það. Eftir hana er atkvæða greiðsla hjá áhorfendum. Sá keppandi sem fær flest atkvæði vinnur og fær að gjöf lítinn plast bíl.
Ég ætla að senda Skjá Einum þetta og er viss um að þeir taka strax við honum.