Arg, ég ætla að nöldra hérna

Ég er með geðveikann verk í langatöng (heitir puttinn það? puttinn í miðjunni) … mér líður eins og það sé einhver að bora í puttann… óþolandi

Ég er líka ógeðslega þreyttur, lá andvaka í alla nótt, sofnaði ekki fyrr en um 4 leitið og þurfti að mæta í skólann kl.8:10 (ég fékk BORGAÐ fyrir það!…eða svona kind of borgað fyrir það…annars hefði ég aldrei mætt)

Svo er ég líka pirraður afþví ég næ ekki að klára verkefnin í tíma afþví ég fylgist aldrei með og kann ekki efnið afþví ég er alltaf á Huga þegar ég ætti að vera að fylgjast með… ég veit ekki afhverju ég geri það, ég er bara latur við að læra

Ég er líka mjög þyrstur, en ég á ekki pening fyrir drykk (ég á ekki einu sinni 100 kall!) … og ég veit ekki hvar ég get fengið vatn í skólanum fyrir utan klósettin, og það er frekar sóðalegt að drekka úr krönunum þar… maður veit aldrei hvað hefur komið við þá -_-


Já! og líka eitt… ég gleymdi headphone-unum hjá félaga mínum fyrir nokkrum vikum, svo var honum hent út og hann nennir ekki að ná í þau, svo fyrir nokkrum dögum gleymdi ég hinum headphone-unum mínum í húsbíl hjá öðrum félaga mínum, og hann þurfti að snúa sólarhringnum við og sefur á daginn núna… þannig ég er ekki með headphone í skólanum, sem suckar, því ég er oft í svona 40-80 min eyðum… og það suckar að hafa ekki tónlist þá!


Well ég sé 2 góða hluti núna… verkurinn í puttanum er farinn og ég á sígarettur (sem bjargar mér alveg)


Ég held að ég sé búinn núna, þurfti bara að fá smá útrás og nöldra smá í ykkur =)

Peace out folks