Hæhæ

Ég var hérna að remast við að svara sálfræðispurningum fram á nótt en þegar ég var að svara þeim ytti ég óvart á einhvern takka. Ætlaði að ýta á Ctrl + b til að gera feitletrað en hef ýtt á eitthvað annað. (Var að horfa á sálfræðibókina ekki lykaborðið þegar ég gerði þetta)

En vandamálið er það, að þegar þetta gerðist komu merki í enda hverra línu. Ég man ekki hvað þetta merki heitir eða hvað það þýðir en ef ég á að útskýra hvernig það lítur út er svipað og P aftur á bak. Ekki nákvæmlega eins auðvitað en ég veit ekki hvernig ég get útskýrt það betur. Síðan til að gera þetta enþá verra eru komnir punktar í staðin fyrir öll bilin.

Þetta er að gera mig brjálaða og ég veit ekki hvernig ég á að laga þetta!

Ég þarf að vera búin með þetta verkefni á morgunn og ekki get ég haft þetta svona.

Svo hjálp kæru hugarar! Ég vona þið getið hjálpað mé rmeð þetta :/

Bætt við 20. október 2008 - 02:53
Ég náði að laga þetta! :D Úff, þetta var allt og óhugnalegt, hélt ég væri búin að skemma verkefnið!

En þetta er komið svo þessi korkur er óþarfi^^
An eye for an eye makes the whole world blind