Klukkan fimm á föstudegi er ótrúlega mikið að gera í matvörubúðum (ÞAÐ ER KREPPA FÓLK HÆTTIÐ AÐ KAUPA OG FARIÐ AÐ SPARA!!!) Í dag var sérstaklega mikið að gera og það vantaði eina stelpu sem átti að vera að vinna. Þessi stelpa sem átti að vera að vinna átti að redda einhverjum til að vinna fyrir sig, því hún þurfti að fá frí (hún nennir aldrei að vinna fyrir neinn!!!) og annað hvort gerði hún það ekki eða bara fann engann til að vinna fyrir sig. Vitiði hvað hún gerir! Í stað þess að láta okkur vita þá bara mætir hún ekki í vinnu og lætur ekki vita að hún fann engann til að vinna fyrir sig. MIG LANGAR TIL AÐ LEMJA HANA (OG ÉG ER EIN AF ÞEIM SEM SNÝR SÉR ALDREI TIL OFBELDIS!!!!)

Svo annað, ég var að gera upp skúffurnar og telja peningana og x-reportið* og peningarnir pössuðu ekki!
Þ.e.a.s. X-reportið var 10.000 KR hærri en peningarnir!!!
Þetta lítur ekki vel út fyrir mig!!!! Ég er ótrúlega hrædd um að vera rekin eða lækkuð í tign :'(
Plús það þá þarf ég að mæta á morgun í vinnuna og ég er svolítið hrædd við vaktstjórann. Hún er alltaf með svona…..augnaráð. Og hún er ströng og maður heldur alltaf að hún ætli að skamma sig. (Hún er samt rosalega næs manneskja)
Mig langar til að gráta x´(


* Fyrir þau sem ekki vita þá er X-Report er svona lítið blað sem sýnir hvað maður hefur grætt mikið á þeim tíma sem maður var að vinna á skúffu. Skúffan og x-reportið eiga alltaf að passa saman. (má vera samt vera einhver smá mismunur en ekki yfir 500 kr, minnir mig.)
If there is one eternal truth about politics, it is that there is always a dozen good reasons for doing nothing