Faðir minn pantaði handa mér headphone og eitthvað dót handa sjálfum sér fyrir þremur vikum. Ég er búin að vera bíðandi eftir þeim síðan þá! Svo voru þau komin til Íslands en þá þurfti að ENDURSENDA þau aftur til síns heimalands því eitthvað helvítis merki á talstöð sem faðir minn pantaði sér var ólöglegt. Og núna þarf ég að bíða í annan mánuð! Sem er skandall því það er ekkert að gera í frímínútum handa þeim sem eiga ekki vini.