Mig langar að væla …

Ég finn til!

Ég er með sting undir herðablaðinu sem leiðir upp í öxl og niður í hendi. Og þetta skánar ekkert þegar ég slaka á eða neitt þannig, verkurinn breytist bara þannig að ég tek aftur eftir honum.

Ég er búin að finna til síðan á laugardaginn :( Og íbúfen virkar ekki …

Ég hata þetta …

Ég þarf líka að gera tvær skýrslur í efnafræði :/

Bætt við 25. september 2008 - 23:11
Ahh, ég fór til læknis og fékk Voltaren (eða Vóstar-S, sami hluturinn) svo nú get ég dópað mig upp og sofið næstu vikuna :)