Ég fór áðan í N1 og þegar ég er búinn að leggja bílnum og opna hurðina þá kallar einhver fertugur karlmaður sem stendur fyrir utan bensínstöðina að mér ,,HEY,HEY,HEY. Ætlarðu ekki að taka poka?´´ Ég svara ,,ha? poka?´´ Ég lít svo á hann og sé að hann er með rúllu af litlum glærum plastpokum eins og maður fær í Krónunni. ,,Já, þú verður að vera með poka´´ segir hann og lyfir rúllunni að mér. Ég ríf poka af og þá segir hann ,,Já, er þetta ekki allt annað líf´´ Ég gekk svo inn í N1 og meðan ég er að versla þá lætur hann alla sem labba inn fá poka.