Jeminn, ég er að fara að byrja í háskólanum. Reyndar önn númer 2 en af einhverjum ástæðum er ég stressaðri núna heldur en ég var síðast. Mig langar til þess að forvitnast hversu margir eru að fara í HÍ? Það sem væri jafnvel enn skemmtilegra er hversu margir eru að fara í Félagsfræði í HÍ.

Á eftir að kaupa allar bækurnar, skráði mig í vitlaus námskeið, þarf að leiðrétta það og já á eftir að eyða mörgum þúsundköllum í bensín á dag því að vitleysingarnir í háskólanum hönnuðu óvenju leiðinlegar stundartöflur þetta árið.

Oh man.