Já, nú er ég ekki sáttur. Ég fór í klippingu í gær í einni af þessum klippistofum þar sem maður gengur inn án þess að panta tíma. Ég hef ekki farið þangað áður en ég ákvað að prufa þetta því þetta leit vel út utan frá.

Ég byrja á því að bíða í sirka hálftíma þangað til ungur hommalegur gaur gengur að mér og segir gjörðu svo vel. Þessi maður var greinilega ekki mjög reyndur ís starfi sínu og var það fyrsta viðvörunar merkið. Ég hefði líklegast átt að hlaupa út þarna en nei, í heimsku minni sest ég niður og hann gerir mig tilbúinn í klippinguna.

Hann: Hvernig viltu láta klippa þig?

Ég: Bara stytta það svolítið þannig það sé rétt fyrir ofan eyru, en ég geti samt gert eitthvað við það.

Hann: Viltu að ég snöggklippi kantinn vinstra megin í hnegil?

Ég: Ha?

Hann: Já viltu að þessi kantur verði tekinn upp og….

Ég missti hann algjörlega þar, hvað í andskotanum var gaurinn að tala um? Þurfti hann að fókusera svona mikið á þennan eina helvítis kant? Gat gaurinn ekki bara spurt mig hvernig ég vildi hafa helvítis hárið?

Hann byrjaði að klippa og mér leist ekkert á hvað hann tók mikið af og þynnti hárið mikið.

Ég: Ertu ekki að taka of mikið af hárinu?

Hann: Nei, ég er að snöggklippa kantinn.

AFTUR MEÐ ÞENNAN HELVÍTIS KANT!!!

OK, svo líkur hann sér að og hárið er orðið miklu styttra en ég vildi, hann er að blása það til og það er í messi.

Hann: Viltu að ég setji gel í hárið og laga það til?

Ég: Já já (það getur varla orðið verra en það er núna)

Þá smyr helvítis gaurinn geli á greiðuna, greiðir hárið niður og toppinn til hliðar NÁKVÆMLEGA EINS OG ADOLF HITLER.

Ég er fokking pirraður.