Vitið þið hvað kostar í Bláa Lónið núna? TVÖÞÚSUND OG ÞRJÚHUNDRUÐ KALL! Sem þýðir hækkun um 500 krónur síðan fyrir ca. 3 mánuðum (þá kostaði 1800, sem var alveg nógu dýrt, þaráður kostaði 1200). Er þetta hægt? Grey túristarnir maður! Núna er ég hætt að fara í Bláa Lónið sem mér finnst mjög leiðinlegt því ég og kærastinn fórum þarna oft til þess að hlaða batteríin og þurfa ekki að pæla í reikningunum, krakkanum, íbúðarláninu og svoleiðis hlutum og núna er búið að taka það af okkur!

Svo skil ég ekkert í bíóverðinu, stundum kostar 900, stundum 950 og svo ELLEVUHUNDRUÐ!?

Kv. immurz sem þolir ekki kreppuástandið! :@