Baldvinur.

Hann er svo sannarlega fallegasti og kynþokkafyllsti maður Íslands, það jafnast enginn á við fegurð Baldvins.

Þegar hann brosir, brosa blómin, sólin verður skærari og litir verða fallegri. Þegar hann hleypur og vindurinn leikur um hans síða fallega hár þá er eins og maður gleymi öllum áhyggjum og getur bara staðið þarna, agndofa, af fegurð.

Já hann Baldvinur er ekki bara fegurðin fullkomnuð, heldur er hann líka bráðgáfaður og svo fyndinn að hnyttnu brandararnir fljúga frá vörum hans einsog þotur fljúga í gegnum skýin.

Það var einmitt hann sem fann upp rafmagnið, gufuvélina og var fyrstur manna til þess að fljúga flugvél.

Baldvinur, þú ert fullkominn.