Skrapp í veiði í dag með vini mínum og byrjaði hún bara alltof vel hjá okkur.. Fyrstu 10 mínúturnar var þvílíkt mikið nartað og svona og ég veiddi meira segja einn fínan fisk strax, en ég ákvað að sleppa honum því ég vildi ekki klára kvótann strax, ég bjóst náttla við því að klára hann strax vegna góðrar byrjunar.. En nei nei, höngum þarna næstu 5 tímana og veiðum ekki rassgat en allt liðið í kringum okkur var að landa á fullu og flestir voru bara þarna í 1-2 tíma.

Ég er bara svo pirraður því veiðivörðurinn þarna vildi gefa okkur fisk úr fiskeldinu svo við færum ekki tómhentir heim, það er ekki rétta múvið til að fá mann uppúr aumingjastiginu.

bless