Tékkneskum dreng var nýlega bjargað úr húsi sínu, en Ondrej Mauerova sem er 7 ára hafði verið komið fyrir í búri af móður sinni og fleirum ættingjum. Ekki nóg með það heldur átu þau hluta af skinni drengsins er hann lá nakinn í búrinu. Ondrej var einnig misþyrmt þannig að hann var handjárnaður við borð, sleginn með belti og brenndur á húð sinni. Nágrannar fjölskyldunnar bjargaði lífi drengsins, en þau höfðu nýlega sett upp öryggismyndavélar í svefnherbergið þar sem nýfætt barn þeirra var sofandi. Í staðinn fyrir myndir af barninu, sneri myndavélin þannig að það sást inn til mannætufjölskyldunnar og fengu nágrannarnir vægt sjokk yfir aðstæðunum í húsinu við hliðina. Þau hringdu rakleiðis í lögreglu sem handtók svo Klöru, móður drengsins ásamt systur hennar og 34 ára Barbora Skrlova, sem Klara sagði svo að hefði heilaþvegið hana til þess að gerast mannæta. ,,Hræðilegir hlutir hafa gerst. Ég geri mér grein fyrir því og ég trúi ekki að ég hafi leyft þeim að gerast”, sagði Klara í réttarsalnum. Þrír aðrir hafa verði kærðir vegna málsins. Samkvæmt útvarpsmiðlinum ,,Radio Praha” í Prag er þetta undarlegasta frétt sem birst hefur í tékkneskum fjölmiðlum í áraraðir.

linkur á frétt er hér

Bætt við 1. ágúst 2008 - 13:46
veit að þetta er gamalt.. but what!
||