Já.. ég á eina vinkonu sem átti að vera mín besta vinkona ..
Við erum búnar að eiga okkar ups and downs og í fyrsta skiptið sem við rifumst almennilega var útaf hún sagði við sameiginlega vinkonu okkar að láta mig ekki vita af eitthverju partýi útaf hún vildi ekki taka mig með ..
og ég brjálaðist..
Hún ætti nú alveg getað sagt beint við mig “ég nenni ekki að fá þig með í þetta partý” ..
Þetta sama kvöld þá var hún segjandi við þessa sameiginlegu vinkonu okkar að hún ætlaði að kýla mig og ég væri dauð og eitthvað..
En daginn eftir fór ég heim til hennar og talaði við hana um þetta og þá sagði hún bara “ég man ekkert eftir að hafa sagt þetta” og ég bara eikkað “okey, hverju breytir”
Eftir þetta þá höfum við alltaf verið alltaf að þræta rosa mikið og alltaf eitthvað ósáttar og farið í taugarnar á hvor öðrum..
Alltaf þegar hún er pirruð þá lætur hún það bitna á mér og lætur mig/alla alltaf stjana í kringum rassgatið á sjálfum sér..
og gerir aldrei neitt fyrir mann í staðinn
Ég hugsa ekki bara um sjálfan mig..
vinir mínir og fjölskylda koma nr 1, 2 og 3 ..
Seinast þegar við rifumst var um þessa helgi og þá hættum við að tala saman í 3 daga ..
en það átti að vera allt mér að kenna.. að hennar sögn..
ég átti að hafa verið að klaga soldið í lögguna og núna sé hún undir eftirliti..
hún hringir í mig á föstudeginum og byrjar að rífa ekkert smá mikinn kjaft og ég nennti ekki að hlusta á það þannig ég skellti á..
ég heyrði svo í gjær frá annari sameiginlegri vinkonu okkar að þessi “góða” vinkona hafi verið að segja um helgina að hún ætlaði að drepa mig og berja mig í stöppu og eitthvað hevý hevý..
á laugardeginum hringir hún aftur og byrjar aftur að rífast..
svo segir hún í restina “þú hugsar um ekkert annað en rassgatið á sjálfum þér”
þá trompaðist ég og sagði “ Hugsa ÉG! alltaf um rassgatið á sjálfum mér! NEI! ég læt ekki vini mína og fjölskyldu stjana í kringum mig eins og ég sé eitthver helvítis drottning en ég nenni ekki að eyða djamminum mínu í að vera pirruð við þig þannig vertu blessuð” og svo skelli ég á..

Hún er alltaf svona..
Er þetta eitthver raunveruleg vinkona eða ? :^)