Þar sem að ég fer núna bráðum að vinna hjá mogganum sem blaðberi langaði mig að vita hvort fleiri hugarar væru í þessu starfi, hvernig þeim líkar það og hvað þeir séu að fá í laun. Væri gaman líka að sjá hvað þið eruð með mörg hverfi og blöð og svona ;p

Ég verð allaveganna með 2 hverfi, og í kringum 150 blöð, veit ekkert um launin mín og þessvegna vildi ég sjá hvað þið eruð að fá, semsagt hversu mikið á blaðið.