Fyrir margt löngu var haldin vefsíðukeppni Huga og þeir sem unnu fengu einhver verðlaun. Þetta vakti áhuga minn á þessum síðum og ég fór að reyna að bæta einhverju rusli inn hjá mér en reyndi samt að hafa gæði umfram magn sem “kjörorð” og ætlaði sko heldur betur að vera ready og vinna til verðlauna í næstu keppni (ég er mikilll keppniskall ;). En málið er bara að þessi keppni hefur bara ekki komið aftur svo að ég spyr hvort það sé eitthvað á döfinni að halda eina slíka?

Ps.
Ég heyrði einhvers staðar að því fleiri stig, því meira gæti maður sett inn á síðuna sína. Ég er núna kominn mjög nálægt 4000 stigunum og ég hef ekki tekið eftir að ég gæti sett inn t.d. fleiri myndir. Ég hef einungis 20 mynda “kvóta”. Ef einhver vildi vera svo væn/nn að útskýra fyrir mér hvernig þetta “því fleiri stig, því meira kasmír pláss” virkar yrði ég afar þakklátur.<br><br>——————————
<a href="http://kasmir.hugi.is/Hvati“ target=”_blank">Tékkaðu á síðunni minni…</a